Back to All Events

Allt eðlilegt hér - Uppistand

Saga Garðarsdóttir og Snjólaug Lúðvíksdóttir eru eðlilegustu og fyndnustu konur Íslands. Saga er gift og með barn og elskar hrökkbrauð og Snjólaug er einstæð og elskar að borða ís og reyna við fólk. Nú sameina þær krafta sína og halda uppistandssýninguna ALLT EÐLILEGT HÉR þar sem hvor þeirra fer með splunkunýtt og bráðfyndið grín fyrir djókþyrsta áhorfendur.

Sýningin hefur verið sýnd kvöld eftir kvöld fyrir fullum sal í Bæjarbíó í Hafnarfirði. Nú mæta þær Saga og Snjólaug í Stykkishólm til að skemmta fólki.

Grínið spannar eðlilegar heimilisaðstæður til erfiðra gelludjamma. Ekki missa af!

Miðasala: https://tix.is/is/event/15140/saga-gar-ars-snjolaug-lu-viks-allt-e-lilegt-her/