Hræðileg helgi!
Morðgáta, glæpir & draugar í Hólminum 24. - 26. febrúar.
Hólmarar eru búnir að búa til spennandi morðgátu sem þarf að leysa. Hver er fórnarlambið og hver morðinginn? Er bæjarstjórinn saklaus? Komdu í Hólminn og leystu morðgátuna!
ATH. 2-3 saman í liði.
Fimmtudagur 23. febrúar
Kl. 14:00-17:00 Amtsbókasafnið
Hræðilegur ratleikur fyrir börn.
Föstudagur 24. febrúar
Kl. 12:00-14:00 Narferyrarstofa
Veitingastaðurinn opinn.
Kl. 14:00-17:00 Amtsbókasafnið
Hræðilegur ratleikur fyrir börn.
Kl. 17:00 Norska Húsið - Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla
Fyrstu vísbendingu í morðgátunni finnur þú fyrir utan Norska húsið, nú getið þið hafist handa við að leysa gátuna.
Kl. 17:00 Norska húsið - Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla
Draugahús fyrir 20 ára og yngri. ATH. Hleypt inn í tveimur hollum kl. 17:00 og kl. 17:30. Dagrún Jónsdóttir þjóðfræðingur segir frá draugum og þeim ólíku gerðum drauga sem finnast á Íslandi, líkt og uppvakninga, afturgöngur, útburði og fépúka. Hún kennir ýmis praktísk atriði eins og hvernig má þekkja drauga sem fólk mætir á förnum vegi, vekja upp draug og svo losna við drauga sem ásækja mann.
Kl. 18:00 Fosshótel
Hræðilegur sérréttur helgarinnar. Dirty ribs & beer og blóðrauður strawberry mojito á barnum.
Kl. 18:00-22:00 Sjávarpakkhúsið
Síðasta kvöldmáltíðin & hanastél djöfulsins.
Borðapantanir á sjavarpakkhusid.is.
Kl. 18:00 Narfeyrarstofa
Veitingastaðurinn og Vínstúkan opin.
Borðapantanir á narfeyrarstofa.is.
Kl. 20:30 Norska húsið - Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla
Draugahús: Dagrún Jónsdóttir þjóðfræðingur segir frá draugum og þeim ólíku gerðum drauga sem finnast á Íslandi, líkt og uppvakninga, afturgöngur, útburði og fépúka. Hún kennir ýmis praktísk atriði eins og hvernig má þekkja drauga sem fólk mætir á förnum vegi, vekja upp draug og svo losna við drauga sem ásækja mann.
Hleypt inn í þremur hollum kl. 20:30, 21:00 og 21:30.
Kl. 22:00 Narfeyrarstofa
Hlaðvarpið Myrkur fjallar um hina ýmsu glæpi. Kokteillinn Göróttur Glæsir, útataður í blóði og blandast inn í hann áhrif bola, manns og draugs. (Við biðjum gesti að mæta tímanlega svo ekki verði mikið rask á meðan upptöku stendur).
Laugardagur 25. febrúar
Kl. 12:00-14:00 Narfeyrarstofa
Veitingastaðurinn opinn.
Kl. 13:00 Norska húsið - Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla
Sýningaropnun, Skessur sem éta karla. Sýning eftir Dagrúnu Jónsdóttir þjóðfræðing þar sem fjallað er um mannát í íslenskum þjóðsögum.
Kl. 14:00 - 16:00 Sjávarpakkhúsið
Dagdrykkja. Leitaðu skjóls frá morðóðum Hólmurum & leystu morðgátuna yfir góðum drykk.
Kl. 14:00 - 16:00 Félagsheimilið Skjöldur
Sagnaskemmtan á Skildi. Landnámsmenn Snæfellsness, afturgöngur og Eyrbyggja.
Hin keltneska tenging Björns austræna - Ásgeir Jónsson.
Fornt og nýtt um afturgöngur - Eyrbyggja saga og skáldsagan Glæsir - Ármann Jakobsson.
Kaffiveitingar
Aðgangseyrir 1000 kr.
Kl. 17:00 Narfeyrarstofa
Hlaðvarpið Myrka Ísland fjallar um íslenskt fjöldamorð. Kokteillinn Göróttur Glæsir, útataður í blóði og blandast inn í hann áhrif bola, manns og draugs. Vínstúkan opnar kl. 16:00. (Við biðjum gesti að mæta tímanlega svo ekki verði mikið rask á meðan upptöku stendur).
Veitingastaðurinn opnar kl. 18:00. Borðapantanir á narfeyrarstofa.is.
Kl. 17:30-18:00 Norska húsið - Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla
Svari við Morðgátunni skilað.
Kl. 18:00-22:00 Sjávarpakkhúsið
Síðasta kvöldmáltíðin & hanastél djöfulsins.
Borðapantanir á sjavarpakkhusid.is.
Kl. 18:00 Fosshótel
Hræðilegur sérréttur helgarinnar, Dirty ribs & beer og blóðrauður strawberry mojito á barnum.
Kl. 20:00 Draugaganga hefst við Norska húsið
Draugaganga um slóðir sem Hólmarar hræðast. Reimleiki í gamla kirkjugarðinum, álagablettir og fleira.
Kl. 21:00 Fosshótel
Glæpa Quiz. Hinar glæpsamlega skemmtilegu systur, rithöfundarnir Kamilla og Júlía Einarsdætur stjórna quiz-inu.