Back to All Events

Fuglar á Snæfellsnesi - Daníel Bergmann

Laugardaginn 25. mars kl. 17:00 opnar í Norska húsinu - Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla ljósmyndasýningin - Fuglar á Snæfellsnesi eftir Daníel Bergmann.

Daníel Bergmann náttúruljósmyndari hefur lengi fylgst með fuglalífinu á Snæfellsnesi og myndað fuglana sem má finna á nesinu, bæði þá algengu og sjaldséðu. Á sýningunni eru myndir af nokkrum þessara fuglategunda ásamt ýmiss konar upplýsandi fróðleik um tilveru þeirra á Snæfellsnesi. Það er vel við hæfi að gefa fuglunum gaum um þetta leyti árs því nú gengur brátt í garð varptími sumra staðfugla og farfuglarnir byrja að streyma til landsins í apríl.

Allir hjartanlega velkomnir.
Léttar veitingar í boði.

 

Ljósmynd: Æðarbliki kemur inn til lendingar í Landeyjarsundi við Stykkishólm. Ekki er hægt að fjalla um fuglalífið við Breiðafjörð án þess að æðarblikinn sé þar í heiðurssæti.

Later Event: 30 March
Kökubasar í Lions húsinu