Back to All Events

Kundalini activation í Vatnasafni

  • vatnasafn Bókhlöðustígur Stykkishólmur Iceland (map)

Kundalini Activation tími með Mörtu Dröfn Björnsdóttur.

Verið innilega velkomin í Kundalini activation tíma. Kundalini-orkan er grunn uppspretta allrar lífsorku og í tímunum vinnum við í að koma jafnvægi á orkuflæðið í líkama þínum. Það eina sem þú þarft að gera er að mæta með opin huga.

Tíminn fer þannig fram að þú liggur á jógadýnu og færð snertingar á ákveðna punkta á líkamanum þínum eins og höfuð, enni, bringu, fætur og lófa og orkan flæðir þar sem hún vill flæða. Það er mjög einstaklingsbundið hvað gerist í tímanum, sumir upplifa tilfinningar eins og reiði, sorg, gleði. Aðrir geta upplifað djúpa slökun, hita, kulda, strauma í líkamanum, þörf fyrir að gráta eða hlæja. Ósjálfráðar hreyfingar geta komið fram, minningar eða sýnir. Allt er þetta eðlilegt þegar lífsorkan þín fer af stað. Áhrif tímans geta síðan fylgt þér áfram. Algengir ávinningar eru betri svefn, dýpri tenging við innsæið, meiri gleði, jafnvægi, vellíðan og ánægjulegri samskipti.

Tíminn kostar 6.000 kr. og það væri best að koma með pening á staðinn. Skráningar í skilaboðum (aðeins 15 sæti í boði)

Earlier Event: 11 December
Laugardagurinn 11. desember í Hólminum
Later Event: 14 December
Jóladagskrá Amtsbókasafnsins