Sýningin Leirlist og textíll eftir Elísabetu Haraldsdóttur og Þorbjörgu Þórðardóttur, stendur yfir í Norska húsinu.
Elísabet stundaði nám við Myndlista-og handíðaskóla Íslands 1967-1971. Framhaldsnám við Listaháskólann í Vínarborg, Hochschule für angewandte Kunst
Wien 1971-1976, þar sem áherslan var á leirlist og skúlptúr. Hún var gestanemandi við Konstfackskólann í Stokkhólmi 1974 og sótti námskeið við Haystack Mountain
School of Crafts í Bandaríkjunum 1993, og fékk styrk til starfa á norrænni vinnustofu í Bergen og starfaði í tvígang í postulínsverksmiðju í Póllandi á International
Symposium „ The Porcelain Another Way“.
Elísabet lauk kennsluréttindanámi frá Listaháskóla Íslands.
Listaverk hennar eru í eigu opinberra stofnana og listasafna.
Elísabet býr á Hvanneyri og hefur starfað m.a. við kennslu og skólastjórnun við grunnskólann á Hvanneyri og stundakennslu við Myndlista-og handíðaskóla Íslands.
Einnig starfaði hún sem menningarfulltrúi Vesturlands til ársins 2019.
Þorbjörg Þórðardóttir
Listvefnaður og blönduð tækni
Þorbjörg er fædd í Reykjavík 1949. Hún stundaði nám við Myndlista-og handíðaskólann og framhaldsnám við Konstfackskólann í Stokkhólmi og hefur unnið
að list sinni allt frá 1975 ásamt kennslu við M.H.Í., K.H.Í. og Fossvogsskóla. Þorbjörg hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði
hér heima í Evrópu og Bandaríkjunum. Hún hefur þrisvar hlotið starfslaun listamanna og unnið til verðlauna fyrir list sína. Listaverk eftir Þorbjörgu eru í eigu opinberra
stofnana og listasafna bæði hérlendis og erlendis þ. á m. Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur.
Sýningin stendur til 29. september.