Málþing á vegum Vitafélagsins - íslenskrar strandmenningar í samstarfi við heimamenn og menningar- og viðskiptaráðuneytið verður haldið laugardaginn 1. október í Vatnasafninu Stykkishólmi kl. 13:30 - 16:00. Málþingið ber yfirskriftina Verkþekking við sjávarsíðuna - arfur til auðs.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.