Back to All Events

Hljómsveitin Bergmál - Dónajól

Hljómsveitin Bergmál kom eftirminnilega fram í Norska húsinu um páskana. En nú endurtaka þær leikinn með jólaívafi.

Hljómsveitin Bergmál inniheldur dömurnar Selmu og Elísu Hildi, þær eru hinar einu sönnu Frostdrósir sem munu syngja inn jólin með húmorinn að vopni.

Þetta er mögulega Fallegasta og dónalegasta jólaskemmtun Íslandssögunnar! Við mætum með húmorinn og gítarinn að vopni og tryllum líðinn með okkar einstöku dónajólalögum.

Jólalegt uppistand í tónlistarformi! Dónajól er einstök tónlistarupplifun sem kætir og grætir! Lögin innihalda kómíska texta sem kemur öllum í réttu jólasköpin og taka þær jólunum alls ekki of alvarlega!

Dömurnar hafa gefið út jólaslagara eins og Askasleikir, Uppstúfur og Heilög fæðing svo dæmi séu nefnd. Lögin eru að finna á m.a. Spotify og youtube. Www.bergmal.band

Earlier Event: 25 November
Upplifðu aðventuna í Hólminum!