Back to All Events

Bakkabræður - brúðuleikhús í Norska húsinu

Hin bráðfjöruga brúðusýning Bakkabræður sýnd í Norska húsinu - Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla á Dönskum dögum.
Aðgangur ókeypis.

Gott er að eiga Bakkabræður
bara til að geta hlegið.

Bakkabræður er bráðfjörugt brúðuleikrit um hina einu sönnu bræður frá Bakka þá Gísla, Eirík og Helga. Kómedíuleikhúsið hefur fangað fjörið sem fylgir þessum þekktustu klaufabárðum Íslandssögunnar og setur upp sýningu þar sem ævintýri Bakkabræðra eru færð yfir í töfrandi búning brúðuleikhússins.

Lögin í sýningunni eru sungin af Diddú við tónlist sem Björn Thoroddsen, gítarleikari, semur og flytur. Marsibil G. Kristjánsdóttir hannar ævintýraheim leiksýningarinnar og gerir brúðurnar sömuleiðis. Leikari og þjónn brúðanna er Elfar Logi Hannesson, sem einnig er höfundur verksins ásamt Sigurþóri A. Heimissyni sem jafnframt leikstýrir.

Kynningarmyndband https://www.facebook.com/K%C3%B3med%C3%ADuleikh%C3%BAsi%C3%B0-68281804072/videos/272780707832257

Tónlistin er á spotify; Bakkabræður tónlist úr leikritinu
Lengd sýningar: 35 mín
Leikari/Höfundur: Elfar Logi Hannesson
Lýsing: Sigurvald Ívar Helgason
Leikmynd/Búningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Tónlist: Björn Thoroddsen
Söngur: Sigrún Hjálmtýsdóttir

Earlier Event: 22 June
Landsmót UMFÍ 50+
Later Event: 23 June
Pöbbarölt - En øl og en til