Fosshótel Stykkishólmur í samstarfi við Bylgjuna og Gull léttöl kynnir Friðrik Dór og Jón Jónsson föstudagskvöldið 17. september kl. 20:00 Frír aðgangur meðan húsrúm leyfir. Tónleikunum verður útvarpað í beinni á Bylgjunni.
Fosshótel Stykkishólmur er eitt glæsilegasta ráðstefnu- og veisluhótel Vesturlands. Í tilefni opnunar á nýendurbættum 300 manna ráðstefnu-, tónleika- og veislusal á hótelinu verður slegið til þessarar tónlistarveislu á föstudagkvöld.
Opið hús verður yfir daginn frá klukkan 16:30 - 18:00.
Sigga Lund mun hita upp fyrir kvöldið og verður með þátt sinn eftir hádegi í beinni á Bylgjunni frá nýja barnum á Fosshótel Stykkishólmi.
Vertu með okkur á föstudaginn í Stykkishólmi. Bylgjan og Gull Léttöl.