Pínulitla gula hænan - Söngvasyrpa.
Aðgangur ókeypis.
Leikhópurinn Lotta kemur í heimsókn til okkkar (íþróttamiðöstðin 25. júní kl 18:00) með ævintýralegt skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna.
Það verður aðeins annar bragur á Lottu í sumar, sökum Covid gátu þau ekki búið til glænýjan íslenskan söngleik í fullri lengd líkt og vanalega, þau hafa þó ekki setið auðum höndum og koma nú til okkar með frábæra söngvasyrpu stútfulla af sprelli og fjöri fyrir allan aldur.
Í sumar ferðast Leikhópurinn Lotta um landið með skemmtilegt atriði unnið uppúr Litlu gulu hænunni. Fjórir þekktir Lottu leikarar mæta á svæðið með frábært skemmtiatriði prýtt fallegum boðskap, frábærum húmor að hætti Lottu og góðum lögum. Sjáumst vonandi sem flest á Pínulitlu gulu hænunni.